Staðurinn

Skemmtistaðurinn NASA opnaði í nóvember 2001. Hann er þó ekki fyrsti skemmtistaðurinn sem rekinn er á þessum stað. Sá hluti húsin sem snýr að Austurvelli var byggður 1870 undir starfsemi kvennaskóla. 1943 keypti Sjálfstæðisflokkurinn húsið undir starfsemi sína og var efri hæðin notuð fyrir flokksstarfsemina. Byggingu salarins þar sem nú er aðalrými NASA lauk í janúar 1946 og var þá fyrsti fundurinn haldinn þar, enda aðstaðan hugsuð sem fundarstaður.

Fljótlega varð þó staðurinn vinsæll til skemmtanahalds og urðu svokölluð síðdegiskaffi fastur liður hjá mörgum Reykvíkingum á þessum tíma. Halldór Laxness var t.d. meðal fastakúnna.

Heimdallur stóð fyrir leiksýningum undir heitinu Bláa stjarnan sem var fyrsta revíuleikhús Reykjavíkur við miklar vinsældir.

Á sjöunda áratugnum var sjálfstæðishúsið leigt undir rekstur skemmtistaðar sem bar nafnið Sigtún og var þar rekinn til margra ára. Á skemmtistaðnum Sigtúni var skv. heimildum í fyrsta skipti á Íslandi sýndur nektardans og var þá, sem nú, um innfluttan listgjörning að ræða.

Ýmis konar starfsemi hefur farið fram í húsinu þann langa tíma sem það hefur staðið og má t.d. sjá Stuðmenn leika þar fyrir dansi í kvikmyndinn Með allt á hreinu. Talsverður hluti innréttinga NASA er frá miðri síðustu öld, t.d. glerskreytingar meðfram dansgólfinu, handriði og innréttingar á salernum.

NASA hefur frá opnun verið lang vinsælasti næturklúbbur Reykjavíkur. Þar er boðið upp á vinsælustu tónlist dagsins í dag í bland við nostalgíu-smelli. Klúbburinn hefur einnig talsvert verið leigður út til minni og stærri einkasamkvæma t.d. á vegum Sony-Ericsson, Delta o.fl.
Styrkur staðarins felst fyrst og fremst í frábæru dansgólfi með fyrsta flokks hljóð- og ljósakerfi.

Staðurinn hefur einnig verið notaður sem leikhús enda einstakur salur til þess háttar starfsemi. Leikritið Sellófón farið hefur NASA tryggt sér stöðu ballstaður þar sem lifandi tónlist hefur fengið að njóta sín. Er nú óhætt að fullyrða að staðurinn er tónleikahús númer eitt í borginni. Allar helstu hljómsveitir landsins hafa spilað á NASA og verður framhald á næstu misseri. Meðal hljómsveita sem hafa gert garðinn frægan á NASA eru hinir einu sönnu Stuðmenn, Sálin hans Jóns míns, Brimkló, Bogomil Font, Trabant, Singapore Sling, Vinyl, Gus Gus, og svo mætti lengi telja. Reyndar hafa nánast allar hljómsveitir sem láta að sér kveða í dag stigið á stokk á NASA.

Á NASA er að finna hljóð- og ljósakerfi sem er með því allra besta sem finnst á landinu, hvort tveggja fyrir diskótek eða hljómsveitir. Nú á haustdögum var enn bætt við kerfið og stendur ekkert hús NASA nú snúning í hljómgæðum.   

Allar nánari upplýsingar um NASA, leigu á húsnæðinu o.s.frv. fást á NASA í síma 511-1313. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á nasa@nasa.is.

eftir Björk Jakobsdóttur var sýnt síðasta vetur við mjög góðan orðstír og vorið 2003 var sett upp söngskemmtunin Þrjár systur þar sem þær Ingibjörg, Þórunn og Dísella Lárusdættur fóru á kostum ásamt Jóni Ólafssyni og hljómsveit.

Undan